miðvikudagur, apríl 27, 2011

já en?

Hvað ætli hafi orðið af hinu stórbrotna hljómverki um hina zývinzælu zetora?

þriðjudagur, maí 11, 2010

Er það ekki bara????

Já ég sagði: Er það ekki bara????
Er ekki kominn tími á að hin æðisgengna, frábæra, fullkomna og merkilega hljómsveit ðe Zetors fari að spila aftur, ha? Er það ekki bara????

ATHUGIÐ.
Hljómsveit þessi verður með opna æfingu/samkomu/sérlunda söngstemmingu og fleira skemmtilegt á Cafe Sirop á Hvammstanga miðvikudagskvöldið 12. maí 2010 næstkomandi.
Hljómsveitin mun spila all vel valin gömul og ný lög, leiðinleg og skemmtileg... þó fleiri skemmtileg, þung og létt en öll lög sem spiluð verða verða í því sem við erum hvað þekktastir fyrir og hefur meira að segja verið samið lag um okkur fyrir þessa þekkt... það er ekkert annað en Lightning Polka.
Uppbótarzetor mun kíkja í heimsókn hjá Hjalta Júl og draga hann svo með sér á þessa opnu æfingu (vonandi). Þá má búast við því að Lóa litla á Brú(n) kíki líka við með Uppbótarzetor-iiii og Hjalta Júl. Töfrabrögð verða sýnd og afhjúpuð, súpuílát verða afsúpuð og ljósin verða deyfð.
En það sem mestu máli skiptir er að láta sjá sig og hafa gaman með öllum hinum sem láta sjá sig sama hversu dauf ljósin verða.
Mætið öll, kaffiveitingar í boði.

Kær kveðja,
ðe Zetors.

föstudagur, ágúst 24, 2007

Hvað getur maður sagt?

Ég veit svei mér ekki, hin taumlausa sigurganga heldur áfram.
"Hvað nú?" hugsar þú eflaust núna, lesandi góður. Já, ég veit svei mér ekki, nú hefur Einar Rúnarsson samið hið frábæra pönklag "Þetta þjóðfélag" eftir forskrift yfirzetors, það.....
Ég.....
Það er bara eins og allt sem maður snertir breytist í gull, svei mér þá!

Og svo er það nýjasta upphefðin, enn eitt skrefið í átt til heimsfrægðar var tekið í gær, miðvikudaginn 23.ágúst, á afmælisdegi systur minnar elskulegrar, sem reyndar er kölluð Silla, en það er nú önnur saga.

En semsagt, Yfirzetor tók í gær þátt í nokkru sem á sjálfsagt eftir að breyta heimsmynd ykkar, já heimsmynd.

Því miður má ég ekki segja frá því á þessu stigi, Bumbuzetor mun mázke leiða ykkur í allan sannleikann um það í fyllingu tímans.

Haldið niðri í ykkur andanum.......

Yfirzetor.

mánudagur, ágúst 13, 2007

Bumbuzetor hefur meikað það......

Elsku bumbuzetorinn okkar.
Ég vil fyrir hönd rest okkar zetora óska þér HJARTANLEGA til hamingju með það að hafa náð því að spila opinberlega í útvarpi í heila 2 klukkutíma. Og það sem meira er; nú hefur hljómsveitin Sniglabandið fengið að spila með aðaltrommara og hljóðmanni Íslands, honum bumbuzetor. Það held ég að ég geti fullyrt að það er einn mesti heiður sem nokkurri hljómsveit getur hlotnast: Að fá tækifæri til að spila með einum, tveimur eða öllum meðlimum hljómsveitarinnar Ðe Zetors.

ZETORAR, þeir lengi lifi. Húrra, húrra, húrra, HÚRRAAAA!!!!!!!!!

baz kveður að sinni frá Frederikshavn.

sunnudagur, júlí 15, 2007

Til hamingju Ísland

Já, gott fólk.
Þar kom að því að Zetorar meikuðu það, með smá aðstoð að vísu.
Með hjálp systurhljómsveitar Zetora, Sniglabandinu, er nú endanlega búið að gera Zetora ódauðlega. Hér vinstra megin á síðunni gefur að líta stiku með spilara, smellið á play og spennið sætisbeltin. Við taka hressilegir tónar úr útvarpsþætti Sniglabandsins á rás tvö; sá mæti maður og gítarleikari, Þorgils Björgvinsson, setti saman bæði lag og texta, að forskrift undirritaðs, með þessum líka frábæra árangri. A.m.k. er undirritaður ákaflega hamingjusamur, áttatíu kílógramma einstaklingur.
Hefur undirrituðum dottið í hug að setja af stað samkeppni, hvetja fólk til að reyna að gera betur en Sniglabandið, setja saman lag og texta um Zetora og senda okkur, eða allavega senda tölvuzetor, honum Palla. Hann zetur það svo inn á síðuna og þið, kæru aðdáendur fáið svo að kjósa um besta Zetoralagið, þ.e. besta fyrir utan Sniglabandslagið, er þetta nokkuð flókið?
Eða nei annars, Zetorar sjálfir velja næstbesta lagið.

Ég hreinlega veit ekki hvað fleira skal segja, á þessari stundu er tregt um tungu að hræra, sem og lyklaborð, ég verð bara að hæ......


Yfirzetor

mánudagur, júlí 09, 2007

Það kom að því...

Ó fokking já. Það er komið að því.

Á sunnudaginn næsta, þann 15. júlí 2007 verður frumflutt lag, já ég sagði HEILT LAG um okkur heimsfrægu zetora. Það verður líklegur Þorgils Björgvinsson sem býr til textann en ekki er ég viss um hver semur lagið. NÚ ER UM AÐ GERA FYRIR ALLA SEM EITTHVAÐ KUNNA Á ÚTVARPSTÆKIN SÍN AÐ STILLA Á RÁS 2 Á SUNNUDAGINN NÆSTA OG HLUSTA Á ÞÁTTINN SNIGLABANDIÐ Í BEINNI Á RÁS 2. Tíðni Rásar 2 er sem hér segir. Hvammstangi (sendir staðsettur á Hvítabjarnarhóli ofan Reykjaskóla) 90,3. Strandir (sendir staðsettur á Ennisálsi) 101,4. Vestfirðir, (veit ekki tíðnina þar) Rofabarð 1, 176,3 og Reykjavík, 90,1.

Fyrir hendur zetora,
bazzazetor.

Athugið að teknar hafa verið upp skammstafanir fyrir gildandi hljómsveitarmeðlimi sem eftirfarandi segir:
yz: yfirzetor = Mundi
bz: bumbuzetor = Silli
baz: bazzazetor = Palli.

mánudagur, nóvember 13, 2006

366 dagar

Að hugsa sér.
Það er komið ár síðan eitthvað var ritað hér seinast. Það er útrúlegt og annað er einnig ótrúlegt að aðdáendur og áhangendur Zetora hafa ekki mikið verið að hvetja okkur í hljómsveitinni til að rita hér eða spila.... annarsstaðar. Allt á sér skýringar. Til þess að útskýra þetta allt saman get ég sagt: ástæðan fyrir þessu sú að aðdáendur Zetora bera svo mikla virðingu fyrir þeim að það er bara ekkert verið að böggast með hvatningu um blogfærslur, til almennrar spilamensku eða til neinna annara óláta í íslensku né erlendu samfélagi. Sem er gott.
En hvað sem öllu líður, líður mér ágætlega hér í Danmörku, bumbuzetori (Silla) líður vel í Reykjavík (hann og frúin voru að fá sér BENZ) og yfirzetori (Munda) líður vel á Hvammstanga. Hann og frúin voru ekki að fá sér BENZ.
ÉG læt þetta gott heita á þessu ári. Sjáumst kannski aftur á næsta ári.

Fyrir hönd Zetora,
bazzazetor (Palli).

laugardagur, nóvember 12, 2005

Sko. er að spá. .... það snýst allt um þá hljómsveit þessa dagan hér í Húnaþingi vestra. Það er vegna þess að Mundi fékk þá flugu í á sér að halda þ.e.a.s. P.F. tónleika. Nú er þessi hugmynd að verða að höbbðið veruleika og hvet ég alla sem við það ráða, og aðra, að mæta á tónleikana sem verða á klukkutíma fresti laugardagskvöldið er næstkomandi í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Hefjast klukkan 21.00. krónur Pink Floyd 1.000 fyrir orðið fullna vaxta fólk en krónur 500 fyrir 11 ára tónleika, og yngri Ég börn. Komið og skemmtið ykkur með áhorfi og áheyrn mikilla tónlistarsnillinga er þeir spreyta sig á þessum Miðaverð líka dúndur góðu lögum úr smiðju Roger Waters og félaga. Þetta er skemmtun ágætu sem enginn má missa af, það er alveg ljóst. Komið endilega og njótið tóna þessara laga þeirra ofurmenna í P.F. T.d. verða þarna lög á borð við: Peningar, Annar múrsteinn í vegginn númer eitt og tvö, Óttalaus, Bless grimma veröld, Loka skurðurinn, undurfagurra Í holdinu og mörg (nokkur) fleiri. Jú jú.... þessu er bannað að missa af.

Hmmmm.....
Eitthvað RUGL hér?????

þriðjudagur, september 06, 2005

Ball ball ball ball ball ball. (Bara eitt reyndar)
Með hljómsveitinni "ÞRJÚ OG PALLI" sem hljómar svona líka rossalega vel. En það eru sem sagt Zetorarnir 3 og Sigrún dögg. Kannski við ættum frekar að hafa The Zetors og Zúkka :)

fimmtudagur, janúar 06, 2005

Hér er EEEEEKKKKKKKKKKKIIIIIII RASSGAT að gerast. Og ef ekki eitthvað fer að gerast hér þá hverfur þessi síða líkt og árið 2004 hvarf í sjónvarpinu á miðnætti aðfaranótt 1. janúar síðastliðinn.......
OG ÞAÐ ER SKO EKKERT MEÐ ÞAÐ.


þriðjudagur, október 19, 2004

>>>13. nóvember næstkomandi<<<

Það er að koma að því.
Þann 13. nóvember næstkomandi verður haldið upp á afmæli barnasunddeilarinnar Buslubörnin á Hvammstanga. Þar munu hinir einu og sönnu Zetorar koma fram í nokkrum lögum með smá hjálp annara svokallaðra hljóðfæraleikara. En eins og flestum ætti að vera orðið kunnugt fyrir löngu eru Zetorar bestu tónlistar- og hljóðfæraleikarar sem finnast í Húnaþingi vestra og þó víðar væri leitað. Gam það er.
Við Zetorar hlökkum mikið til að sjá ykkur öll ágætu aðdáendur. Höfum gaman af tónleikum með Ðe Zetors.

Fyrir hönd Zetora,
Bassazetor.


mánudagur, júní 07, 2004

Trall?

Fer ekki að verða kominn tími á að Zetorar gjöri eitthvað sér til ánægju og ykkur til yndisauka?
Sendið svar í kommenti, zetidag bil ja, eða zetidag bil glaetan!

miðvikudagur, apríl 28, 2004

::: zetorarnir lifah! :::

ðe s

á Þinghúsinu fyrsta mæ.....

500 ikr. inn..

(1200 út)

þriðjudagur, apríl 13, 2004

Laugardagurinn kom

... og fór..
Skilzt undirrituðum að nokkuð sæmilega hafi tekizt til á Þinghúsi því er við braut þá er við norður er kennd, um nýliðna helgi.
Þó vantaði upp á að Bumbuzetor mætti til leiks, enda fjarri góðu gamni og upptekinn við að hneppa öðrum hnöppum í það skiptið. Mun hafa komið til leiks nýbökuð Ædolnd Schwartzenegger stjarna, sem hefur eftir leik þennan fengið viðunefnið LóuZetor frá Brú og mun hann formlega verða tekinn í heilagra manna tölu, þann 1. maí n.k. ef veður leyfir.... Þótti hann standa sig með prýði og fær hann beztu þakkir fyrir vel unninn ztörf í þágu Ízlenzk-Tékknezka...

Kveðja,
Bumbuzetor hinn fyrsti.

fimmtudagur, apríl 08, 2004

Laugardagurinn kemur

Já góðir lesendur. Enn og aftur kemur að því að Zetorar troða upp. Á laugardaginn fyrir páska er möguleiki á að sjá The Zetors spila á Þinghús Bar á Hvammstanga á skemmtikvöldi gítarleikara í héraðinu, svo kölluðu trúbadorakvöldi. Óvíst er hvursu mikil þátttaka bumbuzetors verður á upptroðslunni en víst er að gaman verður því þar sem zetorar koma saman - þar er gaman.

Kveðja,
Bassazetor.


fimmtudagur, apríl 01, 2004

Zetorar að syngja saman á landsmóti Zetora og fylgikvilla þeirra.

Ég má til með að setja inn eina mynd af þessum OFUR ZETORUM félugum mínum. Þeir stóðu sig eins og hírós við flutning á laginu Don't you want me á Landsmóti Zetora og fylgikvilla. Þetta mót var ójafnt en skemmtilegt og gaman var að fylgjast með því úr bassatæði mínu með nýja fína bassann minn.

Kveðja,
Bassazetor.

fimmtudagur, mars 25, 2004

Það er að koma Zetormót

Jú.. Landsmót Zetora og fylgikvilla þeirra verður haldið um næstu helgi í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Fram mun koma fjöldi manns við undirleik Bazzazetors ásamt hljómsveit, til heiðurs Zetorum um víða veröld.
Bar verður til staðar og mun allur ágóði af Vodka Wibrowa-sölu renna til Íslenzk / Tékknezka verzlunarfjelagsins.

Góðar stundir.

Bumbuzetor.

sunnudagur, mars 07, 2004

Myndir ridnyM

Nú er komið að því. Hér sést hin sívinsæla hljómsveit, ðe Zetors, í pásu. Þarna eru þeir búnir að vera ca 6,5 mínútur í pásu. Í pásunni hélt DJ. IMBI, í eigu bumbuzetors, uppi fjörinu með gömlum og nýjum smellum.

Kveðja,
Bassazetor.

Stórkostlegur sigur!

Enn og aftur hafa hinir frábæru zetorar í ðe Zetors unnið glæsilegt tónlistarlegt afrek. Þeir komu, sáu og spiluðu gjörsamlega allt sem þeim datt í hug að spila. Blésu þeir í sönglúðra og léku jafnframt á hefðbundin rokkhljóðfæri allt frá Dressmann laginu upp í Bohemian Rhapsody og tókst alltsaman ljómandi vel. Veitingar voru hvergi við nögl skornar, samlokur hverskyns og bolla í tugum lítra, svo mikið reyndar að afgangur varð mikill og voru kátir söngvasveinar leystir út með bæði samlokuþríhyrnum, skorpulausum, og bollu í plastíláti.

Klúðrasveitin vakti lukku eins og endranær, sem og lag sem var frumsamið á staðnum, óskaði gestur í sal eftir að fá að heyra lag hinnar gullfallegu og æsandi indversku prinsessu Leoncie, um ástir í Kópavogi og víðar. Var snarlega búið til nýtt og enn betra lag, sem yfirzetor skáldaði texta við jafnóðum. Var ótæpilega innbyrt bolla, svo mikil að ekki var laust við að yfirzetor væri farinn að kippa þegar á leið. Einnig var kynntur til sögunnar nýr dagskrárliður er nefndist "hljómsveitin breytir sér." Skiptu meðlimir um hlutverk og léku lag sem undirritaður man reyndar ekki hvað var.

Aðal óskalag kvöldsins var síðan "Ormurinn langi" sem þekkt er í flutningi Týs frá Færeyjum. Reyndist ormur þessi vera ógnarlangur, þar sem hann var leikinn tvisvar í röð og dönsuðu afmælisgestir vatnselyskzt afbrigði af vikivaka. Var svo ormur þessi leikinn aftur seinna um nóttina og var hljómsveitin þar með farin að geta leikið lagið nokkurn veginn skammlaust, var að sjálfsögðu ekkert búið að æfa það, nema kannski eitt eða tvö erindi þegar verið var að stilla upp.

Allt var þetta óhemju skemmtilegt og held ég að hljómsveitin hafi skemmt sér einna mest, a.m.k. var undirritaður farinn að fá hóstaköst af öllum hlátrinum.

Þakkir til allra og sérstaklega til Gunnu afmælisbarns fyrir að vilja fá okkur til verksins.

Ykkar Yfirzetor.

miðvikudagur, mars 03, 2004

Afmælis

Og enn styttist í afmæli, eru nú einungis þrír dagar til stefnu og spennan orðin óbærileg. Eru meðlimir í óða önn að porra hver annan upp og spyrja hverjir aðra hvort þeir kunni þetta og hitt lagið. Yfirleitt er svarið "nei" og er þá sagt "gott, tökum það!" Með viljann að vopni ryðjast zetorarnir í ðe Zetors upp á svið og láta gamminn geysa. Verður þetta söguleg stund, þarsem þetta verður í þriðja skiptið í öllum alheiminum sem ðe Zetors yfirhöfuð spila saman! Einnig má til gamans geta þess að ykkar einlægur Yfirzetor hefur ekkert spilað á þessu ári, verður því notalegt að liðka fingur og raddbönd á laugardaginn næstkomandi.

Og til enn frekara gamans: hin tvö skiptin sem ðe Zetors hafa spilað voru bæði á Gunnukaffi á Hvammstanga, þvílík tilviljun að fara að leika fyrir Gunnu, ætlar þetta nafn að fylgja hljómsveitinni um ókomna tíð kannski?

Kær kveðja, YZ