fimmtudagur, mars 25, 2004

Það er að koma Zetormót

Jú.. Landsmót Zetora og fylgikvilla þeirra verður haldið um næstu helgi í Félagsheimilinu á Hvammstanga. Fram mun koma fjöldi manns við undirleik Bazzazetors ásamt hljómsveit, til heiðurs Zetorum um víða veröld.
Bar verður til staðar og mun allur ágóði af Vodka Wibrowa-sölu renna til Íslenzk / Tékknezka verzlunarfjelagsins.

Góðar stundir.

Bumbuzetor.

sunnudagur, mars 07, 2004

Myndir ridnyM

Nú er komið að því. Hér sést hin sívinsæla hljómsveit, ðe Zetors, í pásu. Þarna eru þeir búnir að vera ca 6,5 mínútur í pásu. Í pásunni hélt DJ. IMBI, í eigu bumbuzetors, uppi fjörinu með gömlum og nýjum smellum.

Kveðja,
Bassazetor.

Stórkostlegur sigur!

Enn og aftur hafa hinir frábæru zetorar í ðe Zetors unnið glæsilegt tónlistarlegt afrek. Þeir komu, sáu og spiluðu gjörsamlega allt sem þeim datt í hug að spila. Blésu þeir í sönglúðra og léku jafnframt á hefðbundin rokkhljóðfæri allt frá Dressmann laginu upp í Bohemian Rhapsody og tókst alltsaman ljómandi vel. Veitingar voru hvergi við nögl skornar, samlokur hverskyns og bolla í tugum lítra, svo mikið reyndar að afgangur varð mikill og voru kátir söngvasveinar leystir út með bæði samlokuþríhyrnum, skorpulausum, og bollu í plastíláti.

Klúðrasveitin vakti lukku eins og endranær, sem og lag sem var frumsamið á staðnum, óskaði gestur í sal eftir að fá að heyra lag hinnar gullfallegu og æsandi indversku prinsessu Leoncie, um ástir í Kópavogi og víðar. Var snarlega búið til nýtt og enn betra lag, sem yfirzetor skáldaði texta við jafnóðum. Var ótæpilega innbyrt bolla, svo mikil að ekki var laust við að yfirzetor væri farinn að kippa þegar á leið. Einnig var kynntur til sögunnar nýr dagskrárliður er nefndist "hljómsveitin breytir sér." Skiptu meðlimir um hlutverk og léku lag sem undirritaður man reyndar ekki hvað var.

Aðal óskalag kvöldsins var síðan "Ormurinn langi" sem þekkt er í flutningi Týs frá Færeyjum. Reyndist ormur þessi vera ógnarlangur, þar sem hann var leikinn tvisvar í röð og dönsuðu afmælisgestir vatnselyskzt afbrigði af vikivaka. Var svo ormur þessi leikinn aftur seinna um nóttina og var hljómsveitin þar með farin að geta leikið lagið nokkurn veginn skammlaust, var að sjálfsögðu ekkert búið að æfa það, nema kannski eitt eða tvö erindi þegar verið var að stilla upp.

Allt var þetta óhemju skemmtilegt og held ég að hljómsveitin hafi skemmt sér einna mest, a.m.k. var undirritaður farinn að fá hóstaköst af öllum hlátrinum.

Þakkir til allra og sérstaklega til Gunnu afmælisbarns fyrir að vilja fá okkur til verksins.

Ykkar Yfirzetor.

miðvikudagur, mars 03, 2004

Afmælis

Og enn styttist í afmæli, eru nú einungis þrír dagar til stefnu og spennan orðin óbærileg. Eru meðlimir í óða önn að porra hver annan upp og spyrja hverjir aðra hvort þeir kunni þetta og hitt lagið. Yfirleitt er svarið "nei" og er þá sagt "gott, tökum það!" Með viljann að vopni ryðjast zetorarnir í ðe Zetors upp á svið og láta gamminn geysa. Verður þetta söguleg stund, þarsem þetta verður í þriðja skiptið í öllum alheiminum sem ðe Zetors yfirhöfuð spila saman! Einnig má til gamans geta þess að ykkar einlægur Yfirzetor hefur ekkert spilað á þessu ári, verður því notalegt að liðka fingur og raddbönd á laugardaginn næstkomandi.

Og til enn frekara gamans: hin tvö skiptin sem ðe Zetors hafa spilað voru bæði á Gunnukaffi á Hvammstanga, þvílík tilviljun að fara að leika fyrir Gunnu, ætlar þetta nafn að fylgja hljómsveitinni um ókomna tíð kannski?

Kær kveðja, YZ

föstudagur, febrúar 27, 2004

Ó Gunna

Kæra afmælisbarn!

Á þessum geðveiku tímamótum er ekki úr vegi að renna kannske yfir þau lög sem óskað er eftir að Zetorar leiki. Kannski þjer skvúbbið hjer fyrir neðan í þartilgert skvúbb, lista yfir óskalög? Og, endilega ekki búast við of miklu, vjer Zetorar erum aðallega að hugsa um að hafa gaman af spileríi, og látum það smitast útí áhorfendahópinn, híhí! En við gerum auðvitað eins og við getum.

Mjer hlakkar geggt til, eins og unga fólkið segir.

Kærar kveðjur,
Yfirzetor.

PS. Að sjálfsögðu leikum vjer lagið "Ó Gunna"

miðvikudagur, febrúar 25, 2004

Komið þið sæl.

Í þættinum í kvöld verður fjallað um lúðra og sveit.

Þann sjötta mars er áætlað að spila í afmæli að Vogum á Vatnsleysuströnd eins og áður hefur komið fram. Ég hugsa bara að ég tali við Ellu um að fá lánaða lúðra til þess að við getum spilað Bóheimían rapsodí á þá. Það er nefnilega kominn tími til að slá í gegn.

Og nú er verið að tala um sveit. Sveitin er milli Sanda og Óss. Silli er þaðan þ.e.a.s.

Kveðja,
BZ

þriðjudagur, febrúar 24, 2004

D-dagur mínus eitthvað!

Úhúhú!
Nú líður senn að sjötta mars og þá er fyrirhugað að leika fyrir afmæli suður með sjó.
Það verður án efa gaman, sérstaklega þar sem yfirzetor hefur ekki spilað neitt síðan á jólaæfingunni á Gunnu heitinni. En allavega er bassazetor nýbúinn að spila, ég fel mig bara á bakvið hann. Svo verða mázke lúðrar með í för, ég el með mér þann draum að leika með klúðrasveitinni hið stórkostlega verk "Bohemian Rhapsody" með kvínflokknum. Roosa góður draumur mar! Vona ég að bassazetor komi með allskonar textablöð eins og hann var einhverntíma að tala um.

Og vil ég þakka elskulegu ástardjásninu mínu fyrir að kommenta á síðuna, var ég orðinn úrkula vonar um frekara líf þar.

Yðar YZ

miðvikudagur, febrúar 04, 2004

Spennandi

Alltaf er nú gaman að skoða myndir, fallegar myndir af mönnum að spila lög á hljóðfæri.

Gaman er að spila á túbu og geta ekkert spilað fyrir hlátri og vera eldrauður í framan.

Gaman er líka að spila á básúnu og vera í skyrtu og með bindi. Sem maður fékk í jólagjöf.

Gaman er líka að spila á kornet af því að maður gleymdi trompetinum.

Gaman er að halda á kornetinum og horfa brosandi á hann.

Gaman er að halda allir á lúðrunum og tala sniðugt saman.

Gaman er að halda á básúnu og vera í skyrtu og með bindi og segja eitthvað í míkrófón.

Gaman er að vera snyrtilega klæddur og halda á básúnu og horfa framhjá manni sem spilar á túbu.

Gaman er að vera tveir og spila á gítar og syngja og annar er að syngja í annað sinn í heiminum í míkrófón.

Já, þarna var stiklað á stóru á skemmtikvöldi, til gamans getið þið fundið hvaða setning/ar eiga við hvaða mynd hér fyrir neðan.

Gaman!

mánudagur, janúar 12, 2004

Nokkrar myndir af skemmtikveldi Zetora á Gunnukaffi.

Já eins og sést á þessum myndum hér að neðan var mjög gaman á skemmtikvöldinu okkar á Gunnukaffi.





föstudagur, janúar 09, 2004

Sjötti mars

Alltaf er nú gaman að fara að spila 6. mars.
Alltaf er nú gaman að vera í skemmtilegri hljómsveit.
Alltaf er nú gaman að grínast í hljómsveit í mússigg.
Alltaf er nú gaman að fíflast og gera gott grín í skemmtilegri hljómsveit.
Alltaf er nú gaman að gera fífl í grínhljómsveit 6. mars.
Alltaf er nú gaman að gera skemmtilegan hljómsveit.
Alltaf er nú gaman að fara stundum og gera oft gaman.
Alltaf er nú gaman að fífla og skemmtilegt sér í gríni.
Alltaf er nú gaman að vera fífl í skemmtilegri grínhljómsveit.
Alltaf er nú gaman að grína og skemmta hljómsveit í Vogum.
Alltaf er nú gaman að vera að fara að grína í fíflasveit í Vogum á Vatnsleysuströnd.

To be continued.
YZ

sunnudagur, janúar 04, 2004

Tilboð.....

Er ekki búið, haldið þið, að nefna það við gæðapopp/rokk/danshljómsveitina ðe Zetors að semja lag fyrir næstu júróvisjón keppni sem haldin verður í Istanbúl þann 15. maí á þessu ný hafna ári. Og hvaða svar haldið þið að ðe Zetors hafi gefið þeim er stjórna júróvisjón keppninni?

Bazzasetor og fleira hveður að sinni.

laugardagur, janúar 03, 2004

Næsta gigg

Já gott fólk, varla voru zetorar búnir að slá sinn lokahljóm á Gunnukaffi fyrr en inn streymdi tilboð um spilerí! Hróður hljónstrinnar berst með eldingarhraða um allt land, zetorar hafa sumsé verið beðnir að leika í afmælisveizlu suður með sjó hinn sjötta mars nk. Þannig að þið sem ekki eruð að digga zetora: hí á ykkur, við erum búnir að meikaða.... meikaðaaa!
Ekki þið.
Við.
Hí.

Þið hin sem aldrei fáið nóg af okkur, látið bara vita hvenær þið viljið fá okkur næst!

Yfirzetor segir:

Gleðilegt ár og kærar þakkir fyrir það gamla!

laugardagur, desember 27, 2003

Jæjjja!!

Þá er það að baki, stærsti tónlistarviðburður síðustu vikna, æfing krydduð með léttri skemmtidagskrá á Gunnukaffi.
Skemmtu flestir sér vel sem yfirzetor hefur náð tali af, ekki sízt hljómsveitarmeðlimir sjálfir. Hámarki náði dagskráin þegar klúðrasveitin steig á stokk og lék létta blöndu af jóla,- dægur og ættjarðarlögum. Að vísu gekk túbuleikara sveitarinnar illa að leika sökum hláturkaztz.
Aðeins vantaði breiðari aldursblöndu og ekki sízt harmónikkuzetor, lá hann heima með kveizu og var því fjarri góðu gamni.

EN! Vei, ó vei! Heyrt hefi ég að einhver hafi séð sig knúinn til þess að gagnrýna framgöngu sveitarinnar á opinberum vettvangi, þ.e. í sjálfu sjónvarpinu!
Nú veit ég ekki í hverju gagnrýnin var fólgin en allavega eru greinilega sumir sem finnst sumt um sumt og setja það sumsstaðar fram, svo sumum þykir illa að sér vegið! Ekki veit ég betur en að í sjónauka hafi verið auglýst skemmtidagskrá, hefur það kannski farið framhjá sumum? Er von maður spyrjih?

Afturámóti er það á altsvo hinn bóginn orðin staðreynd að ðe Zetors hefur með ofangreindu náð þeim merka áfanga að komast í sjónvarpið, bara með því að halda æfingar, opnar almenningi, og er það árangur sem fæstar hljómsveitir hafa náð.

En, í heildina litið er yfirzetor bara nokkuð tilfreds og þakkar þeim sem hlýddu.

Og svona að lokum, hvernig fannst ykkur?

Bæbæ!

föstudagur, desember 26, 2003

Veiveiveiiiii!!

Eru ekki allir komnir með í magann?
Hugsa sér, það er í kvöööld. Balliballiballiballi, ég meina æfingæfingæfingæfing!!
Látið það berast, breiðið út fagnaðarerindið.
Munið að mæta tímanlega til þess að missa ekki af neinu!

Húnvetnski hornaflokkurinn mun troða upp og leika af lyst uns varir gefa sig og úr fer að blæða.
Þessu má enginn missa af, hverjir eru meðlimir klúðrasveitarinnar Zwans? Þeir sem telja sig vita riti svar sitt hér í skvúbbi!

Tvísýnt er orðið um öll hin atriðin sem auglýst eru, í ljós kom að það láðist að hafa samband við alla þá listamenn sem upp hafa verið talin og þar af leiðandi verður þeirra þátttaka í samræmi við það.
En við bara reddum þessu, kvennasöngsveitin hlýýýtur að koma, sem og Dýrleif með töfrabrögðin!

Yfirzetor segir:

gegt!

miðvikudagur, desember 24, 2003

Spezíal búlletin!

Hér var að berast uppástunga.

Þeir sem vilja heyra uppáhaldslögin sín á æfingunni á annan, vinsamlegast komi með texta á papýrusblaði með sér, og jafnvel syngi sjálfir.
Léttist við þetta álag á söngzetor, sem ella þarf að ryðja uppúr sér orðum, hverju úr sinni áttinni, svo af hlýtzt einungis munnlegt öngþveiti.

Semsagt, koma með texta með sér, vilji fólk heyra uppáhalds.
Tekið skal fram að ekki er vízt að zetorar séu kunnugir öllum þeim lögum sem kunna að berast óskir um.

Skrifað tveimur klukkustundum og þremur stundarfjórðungum fyrir jól á Hvammstanga.

Lifið heil,
YZ

Og ég boða yður ennþá meiri fögnuð!

Já, þá er komið að því, Yfirzetor mættur hér með jólakveðju handa yður öllum.
Vil ég byrja á því að segja yður að bjart er yfir Betlehem. Annars er ég svolítið ráðvilltur því ég sá mömmu kyssa jólasvein og er svona að reyna að jafna mig á því.
Ef litið er til himins má sjá að blikar jólastjarna, og ef sjónum er beint niður um níutíu gráður má sjá að jólasveinar ganga um gólf með gylltan staf í hendi. Á leiðinni norður í gær heyrði ég eitthvert væl, upp á miðja heiði, en það reyndist vera krakkasöngur. Ég kemst í hátíðarskap, þó úti séu snjór og krap, drungi í desember, dagskíman föl, svo skelfing lítil er, þetta eru svona sveiflurnar sem ég er að upplifa þessa stundina. En, brátt á himni hækkar sól, við höldum heilög jól og allir verða í stuði.

Með þessum orðum kveður yfirzetor að sinni og vonast til að sjá ykkur öll á annan!

GLEÐILEG JÓL!!!!!

þriðjudagur, desember 23, 2003

"Og sjá, ég boða yður mikinn fögnuð"

Gott kvöld.

Að hætti yfirzetors vil ég koma á framfæri smá innskoti hvað varðar jólaball (æfingu nr.2) á Gunnukaffi. Ballið sem er á allra vörum.
Í hléi mun að öllum líkindum (ef veður leyfir) Jóka jógaséní sýna listir sýnar í að spá í tunglið í skýjuðu veðri, hella eldi yfir grænar baunir og að lokum ætlar hún að lesa upp úr dagbók lögreglunnar á Ian Mayen og Hjaltlandseyjum.
Vonandi sjáum við ykkur sem allra flest og höfum gaman saman.

Og gleymið ekki að Klúðrasveitin Vanur Zvanur eða eitthvað álíka ætlar að spila í byjun balls og í hléi.

Ég segi við ykkur öll, GLEÐILEG JÓL.
Bazza- og kraftazetor kveður að sinni.

Binnngóóóóó!

Nú er heima!
Nú þykir mér týra á tíkarskarinu!
Oft er svoldið ansi seisei!

Já kæru fólk. Nú er komið að nokkru sem við (ég) zetorar (zetor) höfum (hef) ákveðið að kalla leynilottóið!
Og hvur assinn skyldi það nú vera?
Ojújú, það var ákveðið að heimsækjandi nr. 1000 inn á þessa síðu yrði sérstaklega heiðraður með þeim hætti að viðk. fær að ganga ógreiddur inn á zetorball á annan í jólum.
Það er að segja, viðk. þarf ekki að greiða aðgangseyri við innganginn, heldur fær, eins og það kallast á máli götunnar, ókeypis inn!
Og hveeeer er nú sá/sú heppni/heppna?

Já, það er enginn/engin annar/önnur en hinn góðkunni og týpíski Þrööööstur Hriiiiinnnnnnngs!Vér zetorar viljum óska þessum ótrúlega heppna pilti til hamingju og hlökkum til að sjá vinningshafann á balli, þó hlökkum við ennþá meira til að sjá ykkur hin, eða...... uuuu... kannski ekkert meira, heldur jafnmikið! Sem er alveg rosalega mikið!

Jæja, nú er ég farinn að bulla (farinn að?)

Sendi inn hugheila jólakveðju á morgun handa ykkur að lesa!
Þangað til,
gleðilega þorláksmessu! (Sem verður lokið eftir þrjár klukkustundir þegar þetta er ritað)

PSPSPSPSPSPS!!!
Að gefnu tilefni vil ég taka það fram að ekki er beinlínis um ball að ræða, heldur æfingu númer tvö, skemmtunin fyrsta nóv. var semsé æfing nr. eitt!
Allir eru velkomnir!

mánudagur, desember 22, 2003

Obbilíbobbilí

Hhhho-ho-hóóóó!
Hæhóóóóó!!!!
Jájájá, í dag er dagurinn fyrir Þorláksmessu, á morgun er Þorláksmessa og daginn eftir það er aðfangadagur!
Hvað meinar maðurinn?
Jú, þetta þýðir einfaldlega það að daginn þaráeftir er jóladagur!!

Só vatt, myndu sumir spyrja sig. Ekki lái ég þeim það. En semsé, daginn eftir það er annar í jólum!! Og hvað gerðist á annan í jólum krakkar mínir, veit einhver það?

Jú, þá fæddust zetorarnir í ðe Zetors, og í tilefni af því stendur til að halda skemmtikvöld á Gunnukaffi hinn 26. eða öllu heldur aðfaranótt 27. des.

Margt verður í boði sem óþarfi er að telja upp hér, vil ég þó sérstaklega minna á hið magnaða atriði þegar Halldór Blöndal ætlar að reyna að afhýða mandarínu á nýju íslandsmeti! Seinna mun hann sýna jafnvægislistir á mandarínuhýði.
Þessu má enginn missa af!

Sjáumst kát!

YZ!

laugardagur, desember 20, 2003

Balliballiball!

Jólaball
það jafnazt ekkert á við jólaball
þar kemur fólk að danza og danza
og danza
og danza
og danzodanzodanza

og danza já allir koma osso danzidanzidanz
og danzidanzidanz
og danzidanzidanz
og fara svo í partí svoooooo!

Já, við þökkum Ómari kærlega fyrir fallegan söng og minnum enn og aftur á ball á annan í jólum! Það á að vera að koma út Sjónauki með auglýsingu, ennnnndilega kíkja á!

Yfirogút.

Yfir.